Fjölskyldan á Skólabrautinni og bráðum á Hlynskógum 3

......

25.09.2008 23:35:00 / karenO

Hlynskógar 3.

Allir spelllifandi hér og miklu meira en sáttir.
Erum flutt á Hlynskóga 3. Hér er óskaplega notalegt að vera. Skrítið.
Mun rólegra hér heldur en í Akranes Center.
Mun styttra í skólann, sundlaugina, ræktina (hóst), höllina, völlinn, Bónus, Skógræktina.....og fl.
"Hér er sko enginn Lúlli"  : Óli
"Milljón strákar til að leika við" ; Óli
"Erum að fara í fagglega húsið okkar" "við ætlum ekki að flytja aftur" (tveimur dögum eftir flutning)
Allt í einu eru börnin mín eitthvað svo lítil í þessu stóra húsi.
Gaman að vinna í eldhúsinu.
Erum að koma okkur fyrir.

Svo tekur auðvitað alltaf eitthvað annað við. Við Sansi höfum sem sagt skiptst á hlutverkum. Því núna er ég minna heima og hann alltaf heima. Nýja leikritið okkar í Grundó að þessu sinni er hafið og heitir það Vítahringur og er samið út frá bókinni hennar Krillu (Kristínu Steinsdóttur) og Harðar sögu Grímkelssonar. Sagan gerist á landnámsöld í næsta nágreni við Akranes og í Hvalfirði hérna á Vesturlandi. Sem sagt víkingasaga. Ferlega skemmtileg saga og skemmtileg tónlist sem snillarnir hafa samið saman, þeir Flosi, Einar og Gunni Sturla. Ég er sem sagt með dansinn og í einu og öðru. Segi ykkur betur frá þessu síðar.

En jæja heyrumst lömbin mín.


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.07.2008 23:54:01 / karenO

Sumarfrí

Bloggið mitt greinilega í sumarfríi með okkur fjölskyldunni. Helstu atriði frétta eru þessi:

Akureyri í viku og svo beint þaðan á Ólafsfjörð á fótboltamót með Ólafi Inga. Frábært frí og ýmislegt brallað, s.s. farið að veiða, fengið sér ís, farið í marga hjólatúra, leikið í Kjarnaskóg, farið á kaffihús og rölt um miðbæinn, farið í bíó og fleira og fleira.

Unnið hörðum höndum í húsinu að hinum ýmsu verkum. Eldhúsinnréttingin komin upp, vantar borðplötuna og hillurnar f.ofan gluggann. Fataskáparnir í herbergjunum komnir upp líka. Allt er þetta náttúrulega algjör snilld og erum mjög sátt við þetta allt saman. Já svo kláruðum við parketið einhverntíman þarna fyrir löngu og það er svak flott líka á eftir að slípa það vonandi 12.ágúst. Ef það stenst þá stefnum við á að flytja inn laugardaginn 23.ágúst. Svo gæti nú alveg annað komið í ljós og þá frestast það eitthvað en ágætt að stefna að einhverju svona til að miða við. Flest halogen eru klár, búið að tengja og festa þau upp. Ásgeir hefur að undanförnu verið að undirbúa niðurföllin á baðinu til að það sé hægt að fara að flísaleggja þar.

Svo erum við búin að fara í húsafell í bústaðinn og hafa það voða kósí. Erum búin að liggja núna undanfarna daga á Langasandi sem er þvílíka paradísin að það er ótrúlegt. Erum búin að fara óteljandi oft í sund og eiginlega núna daglega í 2-3 vikur enda eru strákarnir orðnir vel brúnir og sællegir og við kannski smá líka. Annars er Ásgeir búin með fríið sitt og er því farin að vinna :(. En allt tekur þetta enda eins og lífið sjálft þess vegna er um að gera að njóta þess í botn.

Já já þannig að við höfum það voða gott hérna á Skaganum, vonum að þið hafið það líka gott elskurnar mínar.

Heyrumst.
kv.kló


» 9 hafa sagt sína skoðun

30.06.2008 12:59:45 / karenO

Allt að koma....

Parketið er allt komið á og allar innréttingar eru komnar inn í hús, samansettar en það á eftir að setja þær allar upp. Ásgeir er núna að vinna í forstofunni og gestaherberginu að klæða loftin. Allt er þetta svakalega flott að okkar mati ;) erum alveg í skýjunum yfir þessu. Ágætt að geta glaðst svona milli þess sem allt er svart í lánamálunum. Reynum að spá sem minnst í því nema að auðvitað reyna að fara vel með krónuna.
Svo styttist í Akureyri hjá okkur, en það verður ábyggilega voða næs.
Bara aðeins að uppdeita fréttirnar.

kv.kló


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.06.2008 19:42:09 / karenO

Parketið að verða klárt.

22 dagar frá því ég skrifaði síðast. Ekki góður árangur það.
Ýmislegt hefur drifið á daga okkar síðan þá. Þó aðalega húsbyggingar, Langisandur, 90 ára afmæli hjá ömmu Siggu, Fjölskyldudagur Marels, fótboltaleikir, og jú ýmislegt annað skemmtilegt. Helgin á enda og erum alveg að klára að leggja parketið á húsið, eigum bara eftir að leggja á Almars herbergi og svo gestaherbergið svo þetta er allt að klárast. Flísarnar eru komnar og hurðirnar líka. Innréttingarnar eiga að koma í næstu og þar næstu viku svo er bara að klára smá loftaklæðningu, flísaleggja, mála eina umferð, setja hurðar í....og svo fullt meira. Vonumst til að geta flutt inn í húsið einhverntíman í ágúst. Það verður algjört æði og er ekki hægt að neyta því að það er komin smá spenningur í fjölskyldumeðlimi.

Af bræðrunum er allt fínt að frétta. Ólafur Ingi spilaði á Þróttaramótinu um miðjan mánuðinn og þeir félagar gerðu sér lítið fyrir og unnu mótið og fengu bikar og alles, voða ánægðir. Almar Kári fer í sumarfrí 7.júlí og þá ætlum við að skella okkur norður á Akureyri í eina viku og enda svo á Nikulásarmótinu með Ólafi Inga. Það verður voða næs að komast í smá frí öll fjölskyldan saman.

Eitthvað er komið af myndum á barnalandssíðuna hjá strákunum endilega kíkið á það. Skelli svo fleirum við tækifæri.

sjáumst lömbin mín


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.06.2008 16:58:13 / karenO

10 ár.

Kannski sem betur fer var ég að hjóla með Almar Kára þegar skjálftinn reið yfir. Samt finnst manni eins og maður hafi misst af einhverju því allir eru að tala um atburðinn. Ekki að það hefði verið gaman að finna skjálftann heldur bara svo merkilegt. En Ásgeir sat inni í Marel og fannst skjálftinn vel þar. Ólafur Ingi fann heldur ekki sem var ágætt því hann var einn á leiðinni heim. Ég hugsa oft um hvernig fólkinu líður þarna fyrir austan, þetta er síður en svo auðvelt og tekur ábyggilega mjög langan tíma fyrir að jafna sig sálarlega. En já sem vetur fer voru lítil slys á fólki.

Það er svolítið merkilegur dagur í dag skal ég segja ykkur. Það var nefninlega fyrir 10 árum að ég náði að krækja í hann Ásgeir minn og held ennþá fast í hann. Hann var agalega sætur i sér í gær og bauð mér út að borða, var búin að redda pössun og panta borð og alles. Fórum á Sjávarkjallarann. Maturinn var meiriháttar góður og óskaplega þægilegt andrúmsloft. Sátum þarna í tæpa fjóra klukkustundir og spjölluðum og borðuðum, algjört æði. Tókum svo smá rölt um miðbæinn og hvern haldiði að við hefðum hitt, jú einn gamalnn Sönderborgara og engan annan en Palla Birgis það var eins og við hefðum hitt hann í gær nema að umhverfið var ekki alveg rétta, þ.e. miðbær Rvk. En gaman að hitta hann.

Hlynskógarfréttir: Ef ég var ekki búin að segja ykkur það þá er búið að spasla allt og mála. Ásgeir er svo á fullu núna að klæða loftið með svona tilbúnum plötum og það kemur hrikalega vel út. Svo er planið að taka vel til í dag og vonandi fáum við múrana til að fara vel yfir gólfin svo hægt verði að byrja á parketinu næstu helgi. Uppsetning á innréttingum ætti þá vonandi að verða um miðjan mánuðinn. Þetta gengur sem sagt bara fínt.

Heyrumt.
kv. Karen


» 8 hafa sagt sína skoðun

09.05.2008 14:45:36 / karenO

Ég.

það er alltaf helgi
málararnir eru búnir
ég er búin að þrífa
ólafur var veikur í gær
það var dregin úr mér endajaxl í vikunni
almar vildi fara í "náttfötuna" sína í gær
mamma og pabbi eru flutt í nýja flotta húsið sitt.
fórum í þrítugsafmæli um helgina hjá Imbu, svaka stuð.
helgin verður róleg.
parketið kemur eftir helgi
náði ekki að hitta Ingólf, vonandi næst.
rigningin er frískandi.
við óli ætlum að fara með dósirnar og sæka svo litla prinsinn.

Tjá og góða helgi ungarnir mínir.



» 4 hafa sagt sína skoðun

23.04.2008 19:38:42 / karenO

Skórnir pússaðir

Eitthvað hefur gerst síðan síðast.
Tók fram takkaskóna og við stöllur kepptum á Drottningamóti IR um helgina og lentum á móti KR í úrslitum. Fengum mark á okkur snemma í leiknum og vorum bara óheppnar, áttum svo tvö hálfgerð dauðafæri og klúðruðum líka víti. Sorgarsaga, en enduðum með silfur pening og ferðagasgrill á mann. Svaka flott verðlaun.

Það var mikil törn í húsinu fyrir þar síðustu helgi að klára allt áður en málararnir kæmu, klára stór og smá verk auk þess að taka allt til og ferja út í skúr, sem sagt hreinsa allt húsið og það hófst allt saman. Málararnir komu svo á þriðjudaginn í síðustu viku og gengur það bara svaka vel. Erum búin að panta flísar, parket, innréttingu og hurðar. Þetta er allt að smella og vonandi getum við flutt í júlí eða ágúst.

Sansi er sem sagt búin að vera í fríi með okkur og þetta er alveg nýtt líf fyrir grasekkjunni. Þvílíkur munur. Erum búin að vera dugleg að fara í sund með prinsana sem endaði reyndar með því að Almar fékk eyrnabólgu hvort sem það var sundið eða eitthvað annað. Fór með hann til Þóris og jú hann er komin með bullandi í vinstra eyra. Var með í hægra í desember.
Annars er veturinn senn á enda og vona bara að sumarið verði gott.
love og allt það.
kv. Karen


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.04.2008 15:15:18 / karenO

SkRíTiÐ

Af hverju líður tíminn svo hratt að manni finnst það hafa verið mánudagur í gær?
Mér finnst alltaf jafngaman að sjá afmælisdaginn minn á mjólkurfernunni, æ þið vitið, rennur út á afmælisdaginn manns 06.04.
Afi spurði mig að því áðan hvað ég væri orðin gömul og ég svaraði að ég yrði nú 29 ára á sunnudaginn, hann varð voða hissa og sagði "29, já þú ert orðin svona gömul" og meinti auðvitað að ég væri ekki lengur 15-17 ára. Eða ég tók því allavega þannig.

Góða helgi.
kv. K.


» 14 hafa sagt sína skoðun

28.03.2008 13:26:55 / karenO

Strætó á Akranesi

Það er fínt að nota strætó. Helgin er komin. Vinna í húsinu. Fara í íþróttaskólann. Borða súpuafganga síðan í gær. Afmæli hjá Úlfi á sunnudag. og fleira og fleira.

Skólahreysti í gær og auðvitað sigraði skólinn minn. Lóa frænka að massa þetta ásamt hinum snillingunum líka.

Sínalkó - skífusímar - kapalvídeo á Grundunum, alltaf mynd á föstudögum - sódastrím - ritvél - fótanuddtækið hennar mömmu - ......

Góða helgi
    
    


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.03.2008 22:29:18 / karenO

Boston

Boston var frábær. Mikið hlegið, eitthvað verslað, skoðað, slappað af og bara notið lífsins.

Húsafell um páskana. Legið í leti og huggað sig með sínu fólki. Bara æði.

Varð bara að setja þessi orð Hrannar skólastjóra inn á síðuna mína. Hún skrifaði þetta eftir sýningu þann 13.mars. 

"Það koma svona augnablik stundum að maður skælir af gleði. Ég upplifði það áðan á árshátíðinni. Þvílík vinna og þvílíkur árangur. Flott atriði og frábærir nemendur. Ég held að það sé ekki á neinn hallað þegar ég dáist sérstaklega að uppfærslu 3. og 4. bekkjar á Ávaxtakörfunni. Það er náttúrulega bara afrek.

Til hamingju með krakkana ykkar og kærar þakkir fyrir mig.

Hrönn."

Algjört æði að fá svona orð.

Annars er páskafríið búið og vinnan tekur við. Það er alltaf ágætt að byrja aftur að vinna þó maður væri nú alltaf til í að fá lengra frí. En það styttist í sumarið. :)

Hafið það sem best lömbin mín.


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.03.2008 22:17:29 / karenO

Lífið er yndislegt

Þá er árshátíðin hjá okkur í Grundaskóla að hefjast og ber heitið "Lífið er yndislegt - verum vinir". Ég búin að stjórna stóru atriði ásamt annari frá því í nóvember. Að verkefninu koma 120 nemendur ásamt 11 kennurum. Þetta er semsagt uppsetning á Ávaxtakörfunni míni söngleik, samt um 23 mínútur. Góður boðskapur þ.e. allir eru vinir og bannað að leggja aðra í einelti, jafnrétti og bræðralag. Í þessu meistarastykki okkar er allt sett saman þ.e. tónlist, söngur, dans, leiklist, myndlist og textílmennt. Gerist ekki betri listasmiðja. Þið verðið bara að kikja á árshátíðina til að sjá þetta ásamt fullt af öðrum frábærum atriðum. Allavega þá hefur þessi vinna tekið töluvert á eins og öll leikrit gera en mikið er þetta samt alltaf skemmtilegt, annars væri maður nú ekki að þessu. Það er líka bara svo gaman að sjá krakkana gersamlega blómstra á sviðinu.

Svo er ég að fara til Boston á föstudaginn fram á miðvikudags morgun. Jú ég er alltaf í útlöndum, verð bara að taka vel út þennan skammt því það verður ekki farið neitt í bráð nema mest í Húsafell og svo á bara að njóta þess að vera í húsinu okkar og klára að standsetja það. Ein að réttláta þetta eitthvað. Skil ekki af hverju maður þarf alltaf að vera að réttláta hitt og þetta. Ég byrja aftur. Ég er að fara til Boston á föstudaginn og ég ætla að njóta þess í botn, púntur og pasta. Þetta er svona góð æfingarferð hjá gömlum fótboltastelpum og jú konum því ég er yngst í hópnum og svo er sú elsta nýorðin fertug. Við unglingarnir verðum saman í herbergi og þetta verður bara stuð. Hef aldrei komið til Ameríku og hlakka bara mikið til að prufa þetta.

Af húsamálum er allt fínt að frétta. Sansi sér um það og ég hinn helminginn þ.e. heimilið og börnin. Ég get allavega sagt að ég get eiginlega ekki beðið eftir að endurheimta karlpunginn aftur á heimlið. Staðan: Nokkurnvegin búið að gera loftagrind, útidyrahurðin er komin í og byrjað að gera forstofuvegginn sem var sá eini sem var eftir. Vonumst eftir þvi að málarar komi um næstu mánaðarmót.

kv. Karen.




» 7 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 22:40:05 / karenO

Frábær ferð og frábært fólk.

Allt í einu heil helgi liðin frá því við vorum í Dk.

Áttum frábæra daga í Danmörku. Fyrst eina nótt í Köben hjá Valdísi og Reynir og prinsessum sem var algjört æði. Svo þrjár aðrar nætur í höllinni á Blommehaven í Sönderborg hjá Döggu og Sveini og co sem var auðvitað geggjað líka. Þúsund þakkir fyrir okkur.

Við leigðum okkur bíl og fengum þennan svaka Volvo kagga, glænýjann og brunuðum til borgarinnar á föstudagsmorgun.

Heimsóttum leikskólann hans Ólafs Inga og þar voru allar sömu leikskólakennararnir og voru þegar Óli var í Parken. Honum fannst þetta voða gaman og okkur fannst eiginlega líka voða skrítið að sjá hann svona stórann í þessu umhverfi. Hann hoppaði nánast upp á þakið á kofanum úti og lék sér á fullu þótt það hefði nú verið rigning þarna á föstudeginum. Svo var auðvitað farið á Jensens og svo kíkt í heimsókn á Nyvang til Dísu og co. Algjört æði húsið hjá þeim eins og hjá öllum þessum snillingum sem við þekkjum í borginni. Svo höfðum við það næs og kósý með familýunni á Blommehaven og spiluðum Gitarhero sem er mjög vinsælt hjá okkur hérna á Skólabrautinni. Svo var auðvitað röllt um borgina og kíkt hingað og þangað. Skroppið í Rubeek gard með Döggu og Dísu og svo á sunnudeginum fórum við aðeins til Óskars og Hafdísar og auðvitað litlu Jóhönnu Dagný. Skelltum okkur svo á Festelavn hjá íslendingunum og hittum þar fullt af góðu fólki sem var óskaplega gaman að hitta. Eins og gengur á svona stað þá hafði bæst mjög mikið af fólki við sem við ekki þekktum. Þar gerði Óli sér lítið fyrir og sló köttinn úr tunninn hjá eldri krökkunum og út kom full tunna af sælgæti, svaka stuð. Elvar vinur hans skellti sér síðan á tunnuna hjá yngri svo þeir félagarnir sáu um þetta. Svo fengum við þessar ljúffengu vöfflur og heitt súkkulaði ala, íslendingafélagið, takk fyrir okkur líka. Eftir þetta stuð fóru þeir félagarnir Óli, Elvar, Aron og Máni á smá labb um bæinn og ætluðu að syngja fyrir fólk, ekki nóg með það að við ætluðum að fara í heimsókn til Lottu og Ole en ekkert bólaði á strákunum. Við skelltum okkur á rúnntinn og leituðum í dágóðan tíma þangað til við fórum aftur upp í hús og þá höfðu þeir verið nýkomnir. "já, við fórum aðeins þangað upp í Jensens" sem er töluvert langt í burtu. Móðirin var nálægt því að fá smá móðursýkiskast yfir þessu, en það var nú óþarfi. Skruppu bara í smá labbitúr. Mamman er heldur ekki alveg að ná því að þeir eru nú orðnir svolítið gamlir. Allavega ekki alveg smábörn lengur. Jæja, svo við skelltum okkur bara þá í heimsókn til Lottu og Ole, sem var alveg nauðsynlegt. Hún bauð okkur auðvitað upp á te og fínerý í flotta Kongelige stellinu sínu sem hún erfði af föður sínum. Ole fór að leika við Ólaf Inga uppi á lofti í golfi og það finnst honum algjört æði. Svo enduðum við sunnudaginn á að fara út að borða með Döggu og co og Dísu og co ásamt bórðir Snorra.....jú jú auðvitað á Mongolían, uppáhaldið okkar. Það klikkaði auðvitað ekki frekar en fyrri daginn. Fékk líka aðeins að kíkja á slottið hjá Beggu og Stebba sem er svakalega flott og stórt hús, og ekki að spyrja að því að þar var húsbóndinn að verki. 

Þannig var okkar skemmtilega ferð í grófum og nokkuð fínum dráttum. Frábær í alla staði. Frábær ferð og frábært fólk. 

Vikan byrjaði svo mjög hratt hjá okkur og var víst nóg að gera.

Sjávarútvegsþema á þriðjudaginn og var ég með smá dansatriði með krökkunum í dansvalinu hjá mér í 9. bekk.

Miðvikudaginn sá ég svo um dansinn á öskudagsballinu fyrir 1.- 4. bekk í báðum skólum, sem sagt troðfullur salur af skemmtilegum fígúrum. Heyrðist það hafa heppnast mjög vel.

Svo bara er allt á fullu að byggja Hlynskóga 3 undir umsjá Sansa.

Skellti með í Húsafell með strákana á laugardaginn með mömmu og pabba og Lóu, Begga og Hinriki. Vorum óð á vélsleðanum.  

Jæja, best að skella sé í smá Gitarhiro. Heyri að Sansi er komin heim og byrjaður að spila 


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 19:34:16 / karenO

Fíona

"Fíóna prinsessa, koddu"

Guðjón litli bróðir varð 18 ára á þann 17.janúar.  Ég skil þetta ekki alveg með aldurinn á öllum í kringum mig, það eldast allir eitthvað svo hratt núna. Einhvern vegin líður mér ekki alveg eins og ég sé 28 ára og næstum 29. Veit ekki hvort þetta venjist eða hvað.  Allaveg verð ég að viðurkenna að það er svolítið skrítið að litli bróðir minn sé ekki alveg eins lítill og hann var alltaf. Hann má sem sagt fara inn á skemmtistaði svo ég get átt von á því að hitta hann á næsta djammi. Veit samt ekki alveg hvenær það verður vonandi á þessu ári ;).

Gitar hero er frábær leikur.

Ég, Sansi og kongurinn ætlum að skreppa til Sonderborgar í næstu viku og vera frá fim-mán. Mikill spenningur í liðinu og Óli er mikið að spá í allt saman. Ætlum að vera hjá þeim Döggu og Sveini og co í nýja húsinu og svo auðvitað fara til Dísu og Snorra í nýja húsið þeirra. Það verður farið í bæinn á föstudeginum og miðbæjarfílingurinn tekin, fengið sér pylsu, Jensens í hádeginu ;)  og skottast eitthvað um bæinn. Mér heyrist líka vera spenningur fyrir Mongolian. Svo á að heimsækja leikskólann hans Ólafs Inga og kíkja líka aðeins og Lottu og Ola og jafnvel Kristu dagmömmu líka. Veit nú ekki hvort þetta takist allt saman en það kemur í ljós. Ætlum allavega að eiga skemmtilega helgi í borginni.

bestu kveðjur,

kvklo 


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.01.2008 21:41:11 / karenO

Úr einu í annað

Hvað er í gangi með færslurnar hjá mér, ég stóð í þeirri meiningu að hafa skrifað feita færslu í gærkvöldi svo fór mín að kíkja á síðuna rétt í þessu, nei nei þá bara gamla jólafærslan. Skvísan hafði þá bara kannski gleymt að Staðfesta....nei man það vel, ég gleymdi þvi ekki. Það er eitthvað annað að gerast. ;(

Úr einu í annað.....

Í búð á föstudaginn kom ég að Almari Kára vera að leika sér og ég fór aðeins að skoða dótið, þá heyrðist í mínum "mamma, ekki fitta" (ekki fikta í dótinu)

Hann er mjög heillaður af drekum og sérstaklega úr Shreck og þar er líka prinsessa og prins. Á laugardaginn vaknaði hann aftur um kl. 11 frekar hress í svona kúrí kósí stemmingu með hnoði og tilheyrandi. Eftir mikið knús við mömmu sína þá sagði hann sinni blíðu og fallegu röddu "mamma ! þú ert PRINSESSA" og hvað er pabbi þá? spurði ég hann "hann er PRINS". Betra gerist lífið ekki.

Ekki amalegt að vera kölluð PRINSESSA alla daga.

Annars leggst nýja árið bara nokkuð vel í mig. Er að lesa bókina hans Guðjóns Bergmanns "Þú ert það sem þú hugsar". Bók fyrir þá sem vilja hjálpa sér sjálfir. Góð bók.

Ólafur Ingi naut sín vel í sprengjunum á meðan Almar Kári var frekar mikið hræddur við lætin og var í öruggu skjóli hjá ömmu sinni og Lenu.

Annars er allt að komast í fastar skorður á heimilinu sem er ægilega fínt. Í morgun sagði ég við þá að núna væri Óli að fara í skólann og mamma og pabbi í vinnuna. Þá kom hneykslu svipur á minn "mamma þú ert ekki að fara að vinna, þú ert að fara í skólann að kenna krökkunum að dasa"

Í gær var farið í skrúðgöngu og á álfabrennuna með svaka flugeldasýningu. Almar faldi sig í vagninum undir skerminum á meðan Óli naut sín vel í öllum látunum. Um kvöldið var svo piparkökuhúsið borðað og mér sýnist það verða borðað eitthvað fram í næstu viku.

Húsafréttir: Sansi stendur sig eins og hetja í þessu öllu saman en fær þrátt fyrir það stundum smá svartsýnisköst eða svona einu sinni í mánuði og segir að þetta hús verði aldrei búið. Ég sem er svo bjartsýn á þetta allt saman enda gengur þetta svakalega vel. Hann er bara komin svo langt í huganum og finnst eitthvað svo mikið eftir. Enda er þetta svaka hús og allt tekur þetta sinn tíma. Hann er sem sagt búin að gera næstum því alla milliveggina, Á eftir að klæða okkar herbergi að innan og svo búa til forstofuna og einn vegg í þvottahúsinu. Núna er hann farin að undirbúa að gera loftagrind ? Það er komin svaka mynd á skipulagið inni í húsinu og erum við alveg himinlifandi yfir þessu öllu saman. Þetta verður algjört partý hús, eldhúsið algerlega í hjarta hússins og ábyggilega frábært að halda veislur og fá gesti. Æ, og líka bara eitthvað svo kósý. Það verður bara æði að flytja þótt það sé langt í land. Dálítið skondið hversu oft maður er spurður um það hvort við séum flutt. En það er vonandi að við getum flutt í sumar, en það kemur allt í ljós.

Jæja nóg í bili.


» 8 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 12:14:13 / karenO

Jólafærsla

Síðustu dagar hjá fjölskyldunni á Skólabrautinni.

Spakmæli vikunnar. " Ryk lýsir innri ró" 

21. des. Afmæli Ólafs Inga haldið á Skólabrautinni með súpu og kökum í eftirétt.

23. des Afmælisdagur Ólafs Inga. Ótrúlegt að hugsa til þess að það séu liðin átta ár frá því hann fæddist. Dagurinn byrjaði með morgunmat í rúmið. Þar næst var dúllast við að klára það sem þurfti að klára fyrir jólin og farið með pakkana á sinn stað. Ásamt því að heimsækja ömmu Siggu á elliheimlið. Um kvöldið skelltum við okkur síðan í göngutúr um bæinn og það var ótrúlega mikil jólastemming í bænum og fullt af fólki á ferli.

24. des. Dagurinn tekinn snemma og allir skelltu sér saman í sundlaugina. Í hádeginu var svo grjónagrautur og komu mamma, pabbi og Guðjón Þór til okkar. Ég og Almar fengum möndlugjöfina og fengum við playmódót og risaeðlur. Ólafur Ingi fékk að eiga playmóið mitt ;) . Þar næst var lagt sig örlítið og svo skelltum við okkur í sparifötin og fórum til tengdó í dýrindis jólamat. Ótrúlega næs að mæta bara. Kalkúnn og tilheyrandi, svakalega gott allt saman. Strákarnir voru ótrúlega rólegir yfir pökkunum og Almar var eiginlega ekki að átta sig á þessu öllu saman. Um hálf ellefu fórum við svo til ömmu og afa Geira þeirra Valdísar og Helga og fengum við ennþá meiri kræsingar hjá henni.

Jóladagurinn var ósköp fínn. Legið í leti, leikið og svo farið í kaffi og mat með minni fjölskyldu. Fyrst ömmu Jónu og svo ömmu Lóu. Sveinki kíkti í heimsókn til ömmu Jónu eins og vanalega og vakti mikla lukku og gaf öllum krökkunum pakka.

2. jóladagur. Afmæli Ásgeirs. Hófst með söng og morgunmat í rúmið. Svo skelltum við okkur út að leika í snjónum. Langt síðan það hefur snjóað svona um jólin. Sleðinn og snjóþotan voru tekin með og við renndum okkur rétt við bryggjuna hérna rétt hjá okkur, mikið stuð og mikið gaman. Svo var aðeins lagt sig og svo sellt sér í önnur jólaboð og þá hjá Geira fjölskyldu. Fyrst hjá afa Ása og Höllu og síðan hjá ömmu Valdísi og afa Helga. Um kvöldið fóru strákarnir til múttu og fatta og við tókum á móti vinum okkar þeim Guðrúnu og Ármanni sem komu frá Noregi fyrr um daginn og svo Áslaugu og Unnari frá Húsavík.

Svona voru jólin þetta árið í grófum dráttum.......

Vona að þið öll hafið haft það gott um jólin.

Bið að heilsa ykkur og takk fyrir jólakveðjurnar.


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10